Baldvin annar á svæðismeistaramóti

Baldvin Þór Magnússon náði góðum árangi á svæðismeistaramóti í gær.
Baldvin Þór Magnússon náði góðum árangi á svæðismeistaramóti í gær. Ljósmynd/FRÍ

Baldvin Þór Magnússon, hlaupari úr UFA, hafnaði í öðru sæti á svæðismeistaramóti í Akron í Ohio-ríki í Bandaríkjunum í 10.000 metra hlaupi í gærkvöld.

Baldvin Þór kom í mark á 30:03,54 mínútum, tæplega þremur sekúndum á eftir Brian Masai, sem varð fyrstur.

Vestanhafs keppir Baldvin Þór fyrir hönd Eastern Michigan-háskólans, þar sem hann er á sínu fjórða og síðasta námsári.

Tíminn sem hann náði í gær var töluvert frá hans besta í greininni, sem er 28:57,17 mínútur og er annar besti árangur Íslendings.

Þeim tíma náði Baldvin Þór á Raleigh Relays-háskólamótinu í Norður-Karólínu-ríki í mars síðastliðnum.

Íslandsmetið á Hlynur Andrésson en hann hljóp 10 þúsund metrana á 28:36,80 mínútum fyrir tveimur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert