KA þrefaldur meistari 2023

Íslandsbikarinn á lofti í KA-heimilinu í kvöld.
Íslandsbikarinn á lofti í KA-heimilinu í kvöld. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

KA tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki í þriðja skipti með því að sigra Aftureldingu, 3:2, eftir oddahrinu í oddaleik liðanna í KA-heimilinu á Akureyri.

KA er þar með Íslandsmeistari annað árið í röð og í þriðja sinn á fjórum árum en Akureyrarfélagið vann titilinn í fyrsta skipti árið 2019.

KA-konur eru með þessu þrefaldir meistarar á tímabilinu en þær höfðu áður unnið úrvalsdeildina og bikarkeppnina.

Óhætt er að segja að félagið sé sigurvegari ársins 2023 því á dögunum varð karlalið KA einnig Íslandsmeistari eftir sigur á Hamri.

Afturelding byrjaði betur í kvöld og eftir sveiflukennda fyrstu hrinu unnu Mosfellingar þá fyrstu, 25:17, með því að skora fjögur síðustu stigin.

KA-konur fagna meistaratitlinum í kvöld.
KA-konur fagna meistaratitlinum í kvöld. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Í annari hrinu skiptust liðin á um forystuna en KA-konur voru sterkari á endasprettinum og unnu hrinuna 25:21, og staðan var þar með jöfn, 1:1.

Í þriðju hrinu var KA með undirtökin frá byrjun, komst í 12:4 og síðan 15:6, og vann hrinuna af umtalsverðu öryggi, 25:17. Staðan var þá orðin 2:1 fyrir KA.

En Afturelding gaf sig hvergi og fjórða hrinan var hnífjöfn og spennandi, liðin yfir til skiptis þar til staðan var 20:20. Þá tók Afturelding völdin, skoraði fimm síðustu stigin, vann hrinuna 25:20 og þar með var allt jafnt, 2:2.

Oddahrinan var gríðarlega jöfn og spennandi, og jafnt á flestum tölum. Afturelding var yfir, 9:7, en KA sneri því við og komst í 12:10 og 13:11.

Afturelding minnkaði muninn í 13:12 en Heiða Elísabet Gunnarsdóttir skoraði tvö síðustu stigin fyrir KA og tryggði Akureyrarliðinu Íslandsmeistaratitilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert