Mikilvægur sigur Venezia í umspilsbaráttunni

Mikael Egill Ellertsson var frábær í sigri Venezia í dag.
Mikael Egill Ellertsson var frábær í sigri Venezia í dag. Ljósmynd/Venezia

Venezia vann gríðarlega mikilvægan heimasigur á Perugia í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag. Lokatölur urðu 3:2 Venezia í vil og átti landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson stóran þátt í sigrinum.

Mikael Egill lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Nicholas Perini á 26. mínútu leiksins áður en hann skoraði svo sjálfur á 60. mínútu og kom hann Venezia í 3:0 forystu.

Gestirnir náðu að skora tvö mörk undir lok leiksins og settu þar með smá pressu á lið Venezia en Feneyingarnir héldu út og sigldu heim gríðarlega dýrmætum sigri.

Eftir sigurinn er Venezia í 7. sæti deildarinnar sem gefur rétt á umspilssæti fyrir A-deild á næsta tímabili. Það er ein umferð eftir í deildinni og er gríðarleg spenna um síðustu tvö umspilssætin. Það eru alls sjö lið sem eiga möguleika á umspilssæti og ljóst að síðasta umferðin verður gríðarlega spennandi.

Pisa, lið Hjartar Hermannssonar, er einmitt eitt þessara liða en liðið gerði jafntefli á útivelli gegn Brescia, 1:1, í dag.

Pisa situr í 9. sæti deildarinnar og er einu stigi frá umspilssæti.

Hjörtur spilaði allan leikinn í vörn Pisa í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert