Baldvin sigraði í Ohio

Baldvin Þór Magnússon sigraði í 1.500 metra hlaupinu.
Baldvin Þór Magnússon sigraði í 1.500 metra hlaupinu. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Baldvin Þór Magnússon sigraði í 1.500 metra hlaupi á svæðismeistaramóti bandarísku háskólanna í Akron í Ohio í gærkvöld.

Baldvin, sem keppir fyrir East Michigan-háskólann, kom í mark á 3:46,34 mínútum, 22/100 úr sekúndu á undan Charles Harders úr Miami-háskóla sem varð annar.

Íslandsmet Baldvins sem hann setti í mars er 3:40,36 mínútur.

Fyrir helgina varð Baldvin annar í 10.000 metra hlaupi á sama móti.

Eva María Baldursdóttir, sem keppir fyrir Pittsburgh-háskóla, varð níunda í hástökki þar sem hún stökk 1,71 metra. Hún á best 1,81 metra og er þriðja á íslensku afrekaskránni í greininni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert