Egill Blöndal varð um helgina Norðurlandameistari í -100 kg flokki fullorðinna í júdó en Norðurlandamótið fór fram í Drammen í Noregi á laugardag og sunnudag.
Egill vann sinn riðil þar sem hann sigraði alla þrjá mótherja sína á ippon, eða með fullnaðarsigri. Í undanúrslitum vann hann Bård Nesbö Skreien frá Noregi á stigum og mætti síðan Kevin Nestor frá Svíþjóð í úrslitaviðureigninni.
Nestor hafði einnig unnið allar sínar glímur en Egill náði að vinna eftir kast á síðustu mínútu viðureignarinnar.
Þetta voru einu gullverðlaun Íslands á mótinu en sextán Íslendingar tóku þátt og tveir aðrir komust á verðlaunapall.
Karl Stefánsson fékk bronsverðlaun í +100 kg flokki fullorðinna og Ari Sigfússon fékk brons í -100 kg flokki öldunga.