Opið mót Mjölnis í uppgjafarglímu, Mjölnir Open, fór fram í 17. skipti á laugardaginn þar sem 67 keppendur frá átta félögum voru skráð til leiks. Af 85 glímum enduðu 53 með uppgjafartaki.
Í opnum flokki karla mættust Kristján Helgi Hafliðason og Halldór Logi Valsson í úrslitum. Báðir tryggðu sér sæti í úrslitum með því að klára allar glímurnar sínar á uppgjafartaki.
Kristján Helgi sigraði Halldór Loga á stigum og er þetta í þriðja sinn sem hann vinnur opna flokkinn. Í öll skiptin hefur hann sigrað Halldór Loga í úrslitum. Kristján Helgi átti frábæran dag, vann allar glímurnar sínar og það án þess að fá eitt stig skorað á sig.
Kristján Helgi nálgast nú þá Gunnar Nelson og Þráin Kolbeinsson, en báðir hafa þeir unnið opna flokkinn fjórum sinnum.
Aðeins einn kvennaflokkur var á mótinu í ár, -70 kg flokkur kvenna, en hinir flokkarnir féllu niður þar sem skráning var ekki næg. Auður Olga Skúladóttir sigraði flokkinn eftir hörku glímu við Söru Dís Davíðsdóttur.
Í opnum flokki kvenna tókst Söru Dís hins vegar að sigra Auði Olgu. Þetta er í fyrsta sinn sem Sara Dís vinnur opinn flokk.
Viktor Gunnarsson úr Mjölni sigraði -66 kg flokk karla eftir flotta glímu við hinn 17 ára Hauk Birgi Jónsson. Þetta er annað árið í röð sem hann vinnur í flokknum.
-77 kg flokkur karla var ansi sterkur en 16 keppendur voru skráðir í flokkinn. Valentin Fels bar sigur úr býtum með sigri á Brynjólfi Ingvarssyni í úrslitum en Breki Harðarson frá Atlantic á Akureyri var í þriðja sæti. Þetta er fjórða árið í röð sem Valentin sigrar sinn flokk á Mjölni Open. Þrisvar hefur hann unnið í -77 kg flokki en í fyrra sigraði hann -88 kg flokkinn.
-88 kg flokkur karla var feikilega sterkur og fjölmennasti flokkur mótsins með 25 keppendur. Stefán Fannar komst í úrslit eftir frábæra glímu við Sigurpál Albertsson. Stefán sigraði Sigurpál á stigum, 2:0, og var glíman ein sú besta á mótinu.
Vilhjálmur Arnarson sigraði Helga Ólafsson með uppgjafartaki í hinni undanúrslitaglímunni. Svo fór að Vilhjálmur kláraði Stefán með uppgjafartaki og vann flokkinn afar verðskuldað. Vilhjálmur vann allar fjórar glímurnar sínar á uppgjafartaki og átti frábæran dag.
Kristján Helgi sigraði -99 kg flokk karla. Kristján sigraði Sigurgeir Heiðarsson á stigum í úrslitum og er þetta í þriðja sinn sem hann vinnur sinn flokk á mótinu
Halldór Logi sigraði +99 kg flokk karla og var það í sjöunda sinn sem hann vinnur sinn þyngdarflokk. Halldór vann báðar glímurnar sínar á uppgjafartaki.
Logi Geirsson krækti í brons í opna flokknum eftir sigur á Stefáni Fannari en þar voru tveir ungir og gríðarlega efnilegir keppendur á ferð, 18 og 17 ára gamlir.