Henrik Danielsen, stórmeistari með 2501 stig, leiðir að lokinni annarri umferð Íslandsmótsins í skák sem fram fór í kvöld, með fullt hús. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skáksambandi Íslands.
Henrik vann í dag Braga Þorfinnsson stórmeistara, sem er með 2431 stig.
Guðmundur Kjartansson stórmeistari, sem er með 2402, og Lenka Ptácníková, með 2099 stig, eru í 2.-3. sæti með 1½ sigur hvor. Bæði gerðu þau jafntefli í dag, Guðmundur við alþjóðlega meistarann Hilmi Freyr Heimisson en Lenka við Jóhann Hjartarson stórmeistara.
Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og Hjörvar Steinn Grétarsson gerðu jafntefli. Báðir hafa þeir því 1 vinning.
Hannes Hlífar Stefánsson, sem er þrettánfaldur Íslandsmeistari, sigraði Dag Ragnarsson í dag og hefur því einnig 1 vinning.
Þriðja umferð fer fram á morgun og hefst kl. 15. Þá mætast stigahæstu keppendur mótsins.