Íslandsmeistarar þriðja árið í röð

Elvar Þormarsson.
Elvar Þormarsson. mbl

Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum stóðu uppi sem Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði, þriðja árið í röð, á Íslandsmótinu í hestaíþróttum á Selfossi í gærkvöldi.

Elvar og Fjalladís hlutu 9,00 í einkunn og greinir Eiðfaxi frá því að um hæstu einkunn sé að ræða í greininni hér á landi eftir að reglum hennar var breytt.

Ásamt því að hafa verið ríkjandi Íslandsmeistarar stóðu þau einnig uppi sem sigurvegarar í greininni á Landsmóti hestamanna á síðasta ári.

Í ungmennaflokki í gæðingaskeiði urðu Benedikt Ólafsson og Leira-Björk frá Naustum III Íslandsmeistarar, sömuleiðis þriðja árið í röð.

Hlutu þau 8,50 í einkunn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert