„Ég þurfti að gera þetta fyrir Gino“

Pello Bilbao fagnaði í gær.
Pello Bilbao fagnaði í gær. AFP

Hjólreiðamaðurinn Pello Bilbao var fyrstur í mark í hjólreiðakeppninni Tour de France í gær en hann tileinkaði fyrrum liðsfélaga sínum, Gino Mäder, sigurinn en hann lést í af sárum sínum í síðasta mánuði eftir að hafa fallið ofan í gil í hjólreiðakeppni í Sviss.

Pello Bilbao sagði að það hafi verið erfitt að koma sér af stað aftur eftir áfallið.

„Þegar við fórum frá Sviss þá áttum við mjög erfitt, ég þurfti að fara heim og hitta fjölskylduna og fá áfallahjálp.“ Hann ákvað í kjölfarið að reyna vinna næstu keppni fyrir Gino.

„Mér byrjaði að líða betur á hjólinu og ég vissi að ég þyrfti að gera þetta fyrir Gino.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert