Poppstjarnan Taylor Swift var mætt á leik Kansas City Chiefs gegn Chicago Bears í NFL-deildinni í ruðningi á sunnudag.
Swift lét vel í sér heyra og sást við hlið Donnu Kelce, móður Travis Kelce, leikmanns Kansas City Chiefs, og Jason Kelce, leikmanns Philadelphia Eagles. Fór vel á með þeim.
Háværir orðrómar hafa verið uppi um að Swift og Travis séu að stinga saman nefjum og sást til þeirra saman eftir leikinn. Hvorugt hefur þó staðfest opinberlega að þau séu par.
Hvað sem því líður er ljóst að viðurvist Swift á leiknum hjálpaði Kansas City Chiefs töluvert við að auka treyjusölu þar sem sala á keppnistreyju Travis Kelce jókst um tæplega 400 prósent eftir leikinn.
CNN hefur eftir talsmanni hjá Fanatics, sem er samstarfsaðili NFL þegar kemur að sölu á varningi, að treyja Kelce hafi skyndilega orðið ein af fimm vinsælustu treyjum leikmanna í deildinni.
Mikill fjöldi dyggra aðdáendua Swifts eru taldir hafa haft mikið að segja um þessa svakalegu aukningu á sölunni á treyju Kelce.