Jóhanna Elín Guðmundsdóttir tryggði sér sæti á EM í sundi í Búkarest í lok árs með því að synda 50 metra skriðsund á 25,34 sekúndum á Íslandsmótinu í 25 metra laug í Ásvallalaug í Hafnarfirði í kvöld.
Var hún rúmri sekúndu á undan Guðbjörgu Bjarteyju Guðmundsdóttur í mark og vann öruggan sigur.
Anton Sveinn McKee, fremsti sundmaður Íslands í dag, vann 100 metra bringusund með miklum yfirburðum. Anton kom í mark á 58,53 sekúndum. Snorri Dagur Einarsson varð annar á 1:00,21 mínútu.
Ólympíufarinn hitar upp fyrir EM í Búkarest sem fer fram 5.-10. desember með því að taka þátt á Íslandsmótinu. Snorri Dagur hefur einnig tryggt sér sæti á EM.
Einar Margeir Ágústsson hefur sömuleiðis tryggt sér sæti á EM og hann vann öruggan sigur í 100 metra fjórsundi er hann kom í mark á 57,03 sekúndum.