Starfsmaður fótbrotnaði á hliðarlínunni

Taysom Hill skorar snertimark fyrir New Orleans.
Taysom Hill skorar snertimark fyrir New Orleans. AFP/Chris Graythen

Vallarstarfsmaður á leik New Orleans Saint og Detroit Lions í bandarísku NFL-deildinni í ruðningi fótbrotnaði illa á föstudaginn var í New Orleans.

Atvikið átti sér stað í öðrum leikhluta þegar Alvin Kamara, hlaupari í liði New Orleans, lenti á starfsmanninum þar sem hann fylgdist með leiknum á hliðarlínunni.

Leiknum lauk með naumum sigri Lions, 33:28, en þetta var sjöundi tapleikur New Orleans á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert