Í ráðhúsi Reykjavíkur í dag veitti Íþróttabandalag Reykjavíkur verðlaun fyrir íþróttafólk og íþróttalið ársins 2023 í borginni.
Andrea Kolbeinsdóttir, frjálsíþróttakona úr ÍR er íþróttakona Reykjavíkur, Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur úr GR, er íþróttakarl Reykjavíkur og Ísold Klara Felixdóttir, karatekvár úr Fylki, er íþvóttakvár Reykjavíkur.
Þá var karlalið Víkings úr Reykjavík í knattspyrnu valið íþróttalið ársins í borginni.
Í tilkynningu frá ÍBR segir um sigurvegarana:
Andrea Kolbeinsdóttir:
Andrea Kolbeinsdóttir er heldur betur búin að eiga ótrúlegt ár en hún gerði sér lítið fyrir og vann öll þau hlaup á árinu sem hún tók þátt í. Meðal þeirra hlaupa sem hún vann voru Laugavegshlaupið og Reykjavíkurmaraþonið, þar sem hún var 33 mínútum á undan næstu konu. Hún gerði sér einnig lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í 5 og 10 km götuhlaupi, hálfu og heilu maraþoni, 1500 m hlaupi, 3000 m hindrunarhlaupi og í 5000 m hlaupi. Í heildina vann hún 7 Íslandsmeistaratitla í hlaupum, sem er magnaður árangur. Að lokum má bæta við að Andrea lenti í 35. sæti á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum í 45 km hlaupi.
Andrea var ekki eingöngu sigursæl á hlaupabrautinni en hún varð einnig Íslandsmeistari í skíðagöngu í tveimur greinum, 5 km göngu með hefðbundinni aðferð og í liðakeppni, en einnig fékk hún tvö silfur í sprettgöngu og 10 km göngu með frjálsri aðferð.
Haraldur Franklín Magnús:
Haraldur Franklín Magnús átti frábært ár en hann lék 13 mót á áskorendamótaröð Evrópu. Meðal annarra afreka á árinu hjá Haraldi má telja upp að hann tók þátt í lokaúrtökumóti fyrir The Open, komst í lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröðina, lék á tveimur á mótum DP World Tour, endaði í 127. sæti á áskorendamótaröðinni og vann sér inn þátttökurétt á áskorendamótaröðinni á næsta ári, en þess má einnig geta að Haraldur Franklín er enn eini karlkylfingurinn sem leikið hefur á risamóti þegar hann lék á Opna Breska meistaramótinu í júlí 2018.
Ísold Klara Felixdóttir:
Ísold átti heldur betur frábært ár og er landsliðskvár í karate, fékk svarta beltið og krækti í silfur og brons á smáþjóðamóti Evrópu.
Víkingur Reykjavík:
Víkingur átti frábært tímabil og er Íslands- og bikarmeistari 2023. Víkings liðið vann því allt sem hægt var að vinna á árinu. Liðið setti bæði stiga- og markamet efstu deildar karla í knattspyrnu.