Valin best fjórða árið í röð

Anton Sveinn og Snæfríður Sól.
Anton Sveinn og Snæfríður Sól. Ljósmynd/Sundsamband Íslands

Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn McKee, fremsta sundfólk Íslands undanfarin ár, hafa verið útnefnd sundfólk ársins 2023. Er þetta fjórða árið í röð sem þau hljóta nafnbótina sund- maður og kona ársins.

Umsögn Sundsambandsins um Snæfríði:

  • Snæfríður Sól er 23 ára gömul og syndir fyrir Álaborg í Danmörku. Hún náði bestum árangri íslenskra kvenna í sundi á árinu 2023, samkvæmt útgefnum viðmiðum SSÍ.
  • Snæfríður Sól varð í 14. sæti í 200m skriðsundi á heimsmeistaramótinu í Fukuoka í júní 2023 og í 17. sæti á sama móti í 100m skriðsundi.
  • Nú í desember keppti Snæfríður Sól á Evrópumeistaramótinu í 25m laug í Búkarest þar sem hún varð í 7. sæti í 200m skriðsundi.
  • Snæfríður Sól setti samtals 13 Íslandsmet á árinu.
  • Snæfríður Sól er í sjötta sæti á lista yfir hröðustu sundkonur í Evrópu þessa stundina í 200m skriðsundi í 25m laug, hún er einnig í sjötta sæti á heimslistanum í sömu grein.
  • Í 50m laug er Snæfríður í 11. sæti á Evrópulistanum og í 44. sæti á heimslistanum.
  • Snæfríður synti á sínum yngri árum í Hveragerði fyrir Sundfélagið Hamar, en flutti til Árósa þegar hún var 11 ára gömul. Hún keppti á Ólympíuleikum ungmenna sem haldnir voru í Buenos Aires 2018.
  • Snæfríður Sól keppti á sínum fyrstu Ólympíuleikum í Tókýó 2021.
  • Snæfríður er góð fyrirmynd jafnt sem sundkona og íþróttamaður utan laugar. Snæfríður Sól stundar nú Sálfræði nám í Háskólanum í Álaborg.
  • Snæfríður Sól mun keppa á Reykjavíkurleikunum sem fram fara í janúar n.k.
  • Snæfríður Sól er verðugur fulltrúi sundhreyfingarinnar og hún er vel að viðurkenningunni komin. Við hjá SSÍ óskum Snæfríði innilega til hamingju með að vera valin Sundkona ársins 2023.

Umsögn Sundsambandsins um Anton Svein:

  • Anton Sveinn McKee verður þrítugur eftir tvo daga, eða þann 18. desember. Anton er sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar. Hann er valinn sundmaður ársins sjötta árið í röð.
  • Anton Sveinn synti í úrslitum á Evrópumeistaramótinu í 25m laug nú í byrjun desember. Þar gerði hann sé lítið fyrir og tryggði sér silfurverðlaun í 200m bringusundi.
  • Anton Sveinn synti á heimsmeistaramótinu í 50m laug í Fukuoka í júní þar sem hann komst í átta manna úrslit í 200m bringusundi og varð í 7. sæti. Á sama móti varð hann í 21. sæti í 100m bringusundi.
  • Anton Sveinn er í 2. sæti á heimslistanum í 200m bringusundi í 25m laug, hann er einnig númer tvö á Evrópulistanum í 25m laug. Í 50m laug stendur hann í 15. sæti í 200m bringusundi og í 5. sæti á lista yfir hröðustu sundmenn í Evrópu í sömu grein.
  • Anton býr í Vestur-Virginíuríki þar sem hann stundar æfingar, en eins og flestir vita var hann eini íslenski íþróttamaðurinn sem náði A-lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Tókýó 2020 og sem stendur er hann eini íþróttamaðurinn á Íslandi sem hefur tryggt sér inn á Ólympíuleikana í París 2024.
  • Anton Sveinn er góð fyrirmynd jafnt sem sundmaður og íþróttamaður utan laugar. Hann hefur sýnt góða ástundun og mikla þrautseigju. Ólympíuleikarnir í Tókýó voru þeir þriðju sem Anton hefur tekið þátt í og nú undirbýr hann sig fyrir fjórðu Ólympíuleikana í París 2024 og skipar sér þar með í sérflokk meðal íslenskra íþróttamanna.
  • Anton hefur verið eljusamur/duglegur við að miðla reynslu sinni og þekkingu til ungra og upprennandi sundmanna á undanförnum misserum.
  • Anton er afar vel að tilnefningunni kominn og við hjá SSÍ óskum Antoni Sveini til hamingju með að vera valinn Sundmaður ársins 2023.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka