Ekki fengið þá athygli sem hann á skilið

„Hann er geggjaður í alla staði og það er mjög auðvelt að halda með honum,“ sagði Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, í íþróttauppgjöri Dagmála þegar rætt var um skíðagöngumanninn Snorra Einarsson.

Snorri, sem er 37 ára gamall, lagði keppnisskíðin á hilluna í ár eftir að hafa hafnað í 15. sæti í 50 kílómetra skíðagöngu á HM í í Planica í Slóven­íu í mars en það er jafnframt besti árangur sem Íslendingur hefur náð í greininni.

Hann er frábær týpa

„Hann er frábær týpa og hefur ekki fengið þá athygli sem hann á skilið,“ sagði Edda Sif.

„Hann er að keppa við menn sem eru að æfa við miklu betri aðstæður. Hann hefur verið að redda sér á Ísafirði á sama tíma og hann hefur verið að taka eitthvað hús í gegn, með konu og börn, en samt alltaf eldhress og er að ná frábærum árangri,“ sagði Edda Sif meðal annars.

Áramótaþátt og íþróttauppgjör Dagmála má nálgast í heild sinni með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Snorri Einarsson á fleygferð á vetrarólympíuleikunum í Peking árið 2022.
Snorri Einarsson á fleygferð á vetrarólympíuleikunum í Peking árið 2022. Ljósmynd/SKÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert