Undrabarnið tapaði úrslitaleiknum

Luke Humphries er heimsmeistari árið 2024 eftir sigur á Luke …
Luke Humphries er heimsmeistari árið 2024 eftir sigur á Luke Littler. Ljósmynd/Alþjóða pílusambandið

Luke Humphries varð í kvöld heimsmeistari í pílukasti eftir sigur á hinum ótrúlega Luke Littler, en Littler er aðeins sextán ára gamall og sá langyngsti frá upphafi til að fara í úrslit.

Var leikurinn jafn framan af og staðan 4:3 fyrir Littler eftir sjö sett, en sá sem fyrr vinnur sjö sett vinnur viðureignina.

Eftir það tók Humphries hins vegar völdin, vann næstu fjögur sett og sinn fyrsta heimsmeistaratitil í leiðinni.

Littler var í 164. sæti heimslistans fyrir mótið í ár og er ljóst að hann tekur fáheyrt hástökk á listanum á næstu dögum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert