Íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is heldur áfram að gramsa í myndasafni Morgunblaðsins og birta á mbl.is á laugardögum.
Nágrannaþjóðir okkar Finnar, Svíar, Norðmenn og Danir eiga glæsilega sögu í frjálsum íþróttum. Að loknu háskólamóti í Austin í Texas í Bandaríkjunum hinn 12. maí árið 1984 var Norðurlandametið í vinsælli grein, 400 metra hlaupi í karlaflokki, ekki í eigu íþróttamanns frá Finnlandi, Svíþjóð, Noregi eða Danmörku. Heldur var það í eigu KR-ingsins Odds Sigurðssonar.
Oddur hljóp á 45,36 sekúndum og þessi frábæri tími er enn Íslandsmet fjörutíu árum síðar. Oddur hrifsaði metið af finnskri kempu, Markku Kukkoaho, sem setti metið í úrslitahlaupinu á Ólympíuleikunum í München árið 1972.
Oddur var þá við nám í Austin í Texas og keppti á háskólamótunum NCAA þar sem margir bestu frjálsíþróttamenn heimsins stungu við stafni.
Síðar sama ár fóru Ólympíuleikarnir fram í Los Angeles og komst Oddur í milliriðil í 400 metra hlaupinu, hljóp á 46,07 sek. og varð í 21. sæti af 80 keppendum. Oddur er tvöfaldur ólympíufari því hann vann sig inn á Ólympíuleikana í Moskvu árið 1980, aðeins 21 árs, og var þá einni sekúndu frá því að komast í milliriðla á 47,39 sekúndum.
Meðfylgjandi mynd er úr safni Morgunblaðsins og sýnir Odd í skjótast upp úr startblokkunum í móti hér heima í KR-búningnum en þess má til gamans geta að í gær fagnaði Knattspyrnufélag Reykjavíkur 125 ára afmæli.
Oddur virtist hafa meðfædda burði til að hlaupa hratt. Hann var einungis tvítugur þegar hann mældist vel undir undir 11 sekúndum í 100 metra hlaupi og undir 50 sekúndum í 400 metra hlaupi.
Oddur Sigurðsson var þrívegis á meðal fimm efstu í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins á þessum árum. Hann hafnaði í 2. sæti árið 1979, í 5. sæti árið 1982 og í 4. sæti árið 1984.