Fjórir nýir íþróttamenn eru komnir í ólympíuhóp ÍSÍ en hópurinn samanstendur af afreksíþróttafólki sem á góða möguleika á að vinna sér inn þátttökurétt á Ólympíuleikunum í París í sumar.
Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee er eini Íslendingurinn sem hefur tryggt sér sæti á leikunum og er hann einn þrettán íþróttamanna á listanum.
Langhlauparinn Baldvin Þór Magnússon, kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir, Ingibjörg Erla Grétarsdóttir, taekwondo, og klifurkonan Svana Bjarnason bætast við síðasta lista. Karlalandsliðið í handbolta fellur af listanum, enda á ekki lengur möguleika á að komast á ÓL.
Hópurinn í dag samanstendur af þrettán keppendum úr einstaklingsgreinum sem allir eiga góða möguleika á því að tryggja sér þátttökurétt. Að auki hefur ÍSÍ möguleika á því að fá úthlutað boðssætum, en slíkt mun koma í ljós í byrjun sumars.
Ólympíuhópurinn: