Rashee Rice, leikmaður NFL-meistara Kansas City Chiefs í ruðningi, er búinn að gefa sig fram við lögreglu í Dallas í Texasríki í Bandaríkjunum vegna hlutdeildar sinnar í bílslysi í síðasta mánuði.
Rice, sem er 23 ára gamall, hafði gefið það út að hann tæki fulla ábyrgð á slysinu, þar sem fjórir hlutu áverka, og að hann hygðist gefa sig fram við lögreglu, sem hann hefur nú gert.
Alls stendur Rice frammi fyrir átta ákæruliðum, þar á meðal alvarlegri líkamsárás og að hafa verið valdur að árekstri sem olli alvarlegum áverkum, og gæti átt yfir höfði sér margra ára fangelsisvist.