Látinn aðeins 41 árs

Rob Burrow leiðir dætur sínar út á völl.
Rob Burrow leiðir dætur sínar út á völl. Ljósmynd/Leeds Rhinos

Rugby-goðsögnin Rob Burrow er látinn aðeins 41 árs gamall eftir langa baráttu við MND-sjúkdóminn. 

Burrow greindist með sjúkdóminn árið 2019, tveimur árum eftir að hann hætti í Rugby. 

Eftir að hafa greinst með sjúkdóminn helgaði Burrow líf sitt að auka vitund um MND-samfélagið og fá aukið fjármagn til þess. 

Á sínum ferli vann hann ensku deildina með Leeds Rhinos margoft og lék fyrir landslið Englands og Bretlands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert