Andlát: Skúli Óskarsson

Skúli Margeir Óskarsson var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ árið 2017 …
Skúli Margeir Óskarsson var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ árið 2017 og myndin tekin við það tækifæri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Skúli Margeir Óskarsson kraftlyftingamaður lést á hjartadeild Landspítalans í gær, sunnudaginn 9. júní. 75 ára að aldri. Skúli varð fyrstur íslenskra íþróttamanna til að setja heimsmet, þegar hann setti heimsmet í réttstöðulyftingum árið 1980 og var brautryðjandi á sviði kraftlyftinga á Íslandi.

Skúli fæddist 3. september árið 1948. Hann ólst upp á Fáskrúðsfirði og þrátt fyrir að hafa lengst af búið á höfuðborgarsvæðinu keppti hann undir merkjum Leiknis og UÍA.

Skúli hóf að æfa lyft­ingar seint á sjö­unda ára­tugnum. Hann keppti á sínu fyrsta mót­i 1970 og setti næstu árin hvert Íslands­metið á fætur öðru. Skúli keppti einnig á alþjóðlegum lyftinga­mótum og náði silfri í létt­vigt­ar­flokki á heims­meist­ara­mót­inu árið 1978 í Turku í Finnlandi. Það ár var hann kjörinn Íþrótta­maður árs­ins, fyrstur allra kraftlyft­inga­manna.

Árið 1980 setti hann heims­met í réttstöðulyftu þeg­ar hann lyfti 315,5 kg í 75 kg flokki. Það ár var hann kjör­inn Íþróttamaður árs­ins í annað skipti. Skúli vann að auki tvenn bronsverðlaun á HM, þrjá Norð­ur­landa­meist­aratitla og fjöl­marga titla inn­an­lands. Skúli var þjóðþekktur fyrir afrek sín en vakti ekki síður athygli fyrir hnyttin tilsvör og líflega framkomu á mótum. Skúli var sæmdur gullmerki KRAFT 2016 og var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ árið 2017.

Skúli lætur eftir sig eiginkonu, dóttur, tvær stjúpdætur og átta barnabörn.

Skúli Óskarsson var heimsmethafi í kraftlyftingum og var tvívegis útnefndur …
Skúli Óskarsson var heimsmethafi í kraftlyftingum og var tvívegis útnefndur Íþróttamaður ársins hér á landi.
Skúli lét þrönga æfingaaðstöðu ekki aftra sér og komst í …
Skúli lét þrönga æfingaaðstöðu ekki aftra sér og komst í fremstu röð á heimsvísu í sinni íþrótt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert