Bardaga Conor McGregor og Michael Chandler hefur verið aflýst en hann átti að fara fram 29. júní.
Þetta átti að vera fyrsti bardagi McGregor síðan árið 2021 þegar hann fótbrotnaði í tapi gegn Dustin Poirier en McGregor þarf að hætta við vegna meiðsla.
Þetta er í fyrsta sinn sem 35 ára gamli Írinn hættir við bardaga vegna meiðsla. Bardaginn var tilkynntur 24. maí og miðar seldust upp á undir tíu mínútum.