Landsliðsmaður lést 25 ára

Connor Garden-Bachop.
Connor Garden-Bachop. Ljósmynd/@NZRugby

Connor Garden-Bachop, landsliðsmaður Nýja-Sjálands í rúbbí, er látinn aðeins 25 ára að aldri.

Rúbbísamband Nýja-Sjálands tilkynnti að Garden-Bachop hafi fallið frá í Christchurch í heimalandinu í kjölfar læknismeðferðar.

Garden-Bachop átti tvo landsleiki að baki fyrir ógnarsterkt lið Nýja-Sjálands, sem oftast er þekkt sem hinir alsvörtu (e. All Blacks).

Faðir hans, Stephen Bachop, lék sömuleiðis rúbbí fyrir bæði Samóa og Nýja-Sjáland og sömu sögu er að segja af móður hans, Sue Garden-Bachop, sem lék fyrir landslið Nýja-Sjálands.

Garden-Bachop lék í stöðu vængmanns og var lýst sem „stórkostlegum ungum leikmanni“ í tilkynningu Rúbbísambands Nýja-Sjálands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert