Hættir keppni vegna meiðsla

Aryna Sabalenka faðmar Paula Badosa
Aryna Sabalenka faðmar Paula Badosa AFP/Bertrand GUAY

Hvít-rússinn Aryna Sabalenka hefur dregið sig úr keppni á Wimbledon mótinu í tennis vegna axlarmeiðsla. Sabalenka er þriðja á heimslista og hefur tvisvar náð í undanúrslit á mótinu.

Sabalenka þurfti að hætta keppni á upphitunarmóti í Berlín á dögunum vegna meiðsla á öxl og þáttaka hennar á Wimbledon var tvísýn. 

„Það sem truflar mig eru uppgjafirnar, ég get gert allt annað en gefið boltann upp, það er mjög pirrandi því mér líður ekki eins og ég sé meidd þess utan. Ég get æft og slegið lága bolta en ekki gefið upp“. Sagði Sabalenka.

Erika Andreeva tekur sæti Sabalenka í fyrstu umferð og mætir Emina Bektas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert