Ríkjandi meistari í einliðaleik kvenna á Wimbledon mótinu í tennis, Marketa Vondrousova frá Tékklandi, féll óvænt úr leik í fyrstu umferð. Þetta er í fyrsta skipti í þrjátíu ár sem ríkjandi meistari tapar í fyrstu umferð.
Hin spænska Jessica Bouzas Maneiro, sem er í 83. sæti heimslistans, skellti Vondrousova í tveimur settum, 6:4 og 6:2 á Centre Court vellinum. Vondrousova var í sjötta sæti í styrkleikaröðun fyrir mótið en of mörg mistök kostuðu hana í dag.
Vondrousova kom verulega á óvart á síðasta ári en hún var ekki á styrkleikalista mótsins fyrirfram.