Novak Djokovic vann Vit Kopriva, 6:1 6:2 6:2, á Wimbledon-mótinu í tennis en þetta var hans fyrsti leikur eftir aðgerð.
Djokovic þurfti að draga sig úr keppni í átta-liða úrslitum á Opna franska meistaramótinu í byrjun júní og fara í aðgerð á hné.
Óvíst var hvort Serbinn gæti tekið þátt á mótinu en hann mætti til leiks og hafði betur gegn Kopriva í fyrsta leiknum, sem er tíu árum yngri en Djokovic sem er 37 ára gamall.
Í næstu umferð mætir hann Bretanum Jacob Fearnley.