Hafsteinn Már Sigurðsson, landsliðsmaður í blaki, hefur skrifað undir samning við Habo í sænsku úrvalsdeildinni.
Hafsteinn er uppalinn hjá Vestra á Ísafirði en hefur síðustu tvö tímabil spilað með Aftureldingu. Hann spilar stöðu Dió og var valinn besti Íslendingurinn á síðasta tímabili en Afturelding komst alla leið í úrslitaeinvígið en tapaði gegn Hamri.
Hafsteinn hefur tvisvar verið í draumaliði úrvalsdeildarinnar og spilað með íslenska landsliðinu síðustu þrjú ár.