Yfirgaf búningsklefann til að bjarga móður sinni

Alexis Mac Allister yfirgaf búningsklefann rétt fyrir úrslitaleik til þess …
Alexis Mac Allister yfirgaf búningsklefann rétt fyrir úrslitaleik til þess að veita móður sinni aðstoð. AFP/Maddie Meyer

Alexis Mac Allister, landsliðsmaður Argentínu í knattspyrnu, þurfti að yfirgefa búningsklefa Argentínumanna rétt fyrir úrslitaleik Am­er­íku­bik­ars karla í knatt­spyrnu í gær til að bjarga móður sinni.

Móðir Allister þurfti aðstoð hans til að komast inn á völlinn vegna troðnings sem myndaðist fyrir utan leikvanginn. ESPN greinir frá. 

Þúsundir stuðningsmanna, sem ekki voru með miða á leikinn, reyndu að komast inn á leikvöllinn. Meira en tug­ur fólks var hand­tek­inn og marg­ir þurftu á lækn­isaðstoð að halda. 

Róaði hann og sagði honum að vinna

Silvina, móðir Allister, lýsir ástandinu fyrir utan leikvöllinn sem ómannúðlegu.

Í myndbandi sem birt hefur verið á samfélagsmiðlum segir Silvina son sinn hafa haft áhyggjur af henni.

„Við vorum í sambandi við Alexis allan tímann, en hann sagðist ætla bíða úti þangað til við kæmum inn. Hann beið eftir okkur þangað til við komum inn. Við föðmuðum hann einu sinni inni, róuðum hann og sögðum honum að vinna,“ segir Silvina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert