Má ekki skilja íþróttafólkið okkar algjörlega eftir

Erna Sóley Gunnarsdóttir er ein af fimm keppendum Íslands á …
Erna Sóley Gunnarsdóttir er ein af fimm keppendum Íslands á Ólympíuleikunum. mbl.is/Eyþór

Átta. Það eru átta dagar þar til ofanritaður flýgur til Parísar ásamt ljósmyndara Morgunblaðsins til að sækja Ólympíuleikana og fylgja eftir okkar besta íþróttafólki. Fimm íslenskir keppendur hafa tryggt sér sæti á leikunum, færri en vonast var til. Vonandi verða þeir mun fleiri í Los Angeles eftir fjögur ár og vonandi fara stjórnvöld að sjá betur um afreksíþróttafólk okkar.

Það er mikill efniviður í mörgum íþróttagreinum hér á landi og þjálfun til fyrirmyndar. Það vantar hins vegar meira og betra afreksstarf fyrir þá sem hafa alla burði til að komast í allra fremstu röð.

Vésteinn Hafsteinsson benti á í viðtali að okkar besta listafólk væri á listamannalaunum frá ríkinu en okkar besta íþróttafólk væri skilið eftir. Auðvitað er það gott og blessað að okkar færu listamenn fái laun frá ríkinu, en það má ekki skilja íþróttafólkið okkar, sem hefur fært okkur svo mörg mögnuð augnablik, algjörlega eftir.

Bakvörðinn í heild sinni má sjá í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert