Dæmdur nauðgari fær ekki að vera í Ólympíuþorpinu

Steven van de Velde.
Steven van de Velde. Ljósmynd/FIVB

Hollendingurinn Steven van de Velde, dæmdur nauðgari sem tekur þátt á Ólympíuleikunum, fær ekki að gista í Ólympíuþorpinu.

Hann keppir í strandblaki á leikunum en hann var dæmdur fyrir að nauðga 12 ára barni á Englandi árið 2016 þegar hann var 19 ára gamall.

Hollenska Ólympíunefndin tilkynnti þetta í gær en hann má ekki tala við fjölmiðla á leikunum til að koma í veg fyrir hörð viðbrögð við því að hann keppi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert