Baldvin bætti eigið Íslandsmet

Baldvin Þór Magnússon
Baldvin Þór Magnússon Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Baldvin Þór Magnússon úr UFA bætti eigið Íslandsmet í 1.500m hlaupi á BMC Record Breaker í London í gærkvöldi og varð um leið fyrstur Íslendinga til að hlaupa vegalengdina undir þremur mínútum og 40 sekúndum.

Baldvin hljóp á tímanum 3:39,90 mín. en fyrra Íslandsmet hans var 3:40,36 mín. frá árinu 2023.

„3.40 er ákveðinn múr sem mig er búið að langa að rjúfa lengi þannig það er mjög góð tilfinning að ná því. Auk þess er líka gott að vinna hlaupið mitt, það er mikilvægt að kunna koma sér fyrstur yfir línuna“, sagði Baldvin við fri.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert