Íslandsmeistarinn ungi vann aftur

Garima N. Kalugade, til hægri, er sigursæl.
Garima N. Kalugade, til hægri, er sigursæl.

Íslandsmeistari kvenna í tennis, hin 13 ára gamla Garima N. Kalugade, sigraði í flokki U16 ára á Europe Icelandic Open-mótinu á Víkingsvöllunum í Fossvogi í gær.

Garima sigraði Alice Sclafani frá Ítalíu, 6:1, 6:2, í úrslitaleiknum. Þetta er annar sigur Garimu á Tennis Europe-móti á þessu ári en hún er fyrsta íslenska  tenniskonan til að vinna slíkt mót.

Garima verður einn af fjórum keppendum Íslands á Evrópumeistaramóti smáríkja í Lúxemborg í ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert