Mercedes-mennirnir í fyrsta og öðru sæti

George Russell og Lewis Hamilton, ökumenn Mercedes.
George Russell og Lewis Hamilton, ökumenn Mercedes. AFP/Attila Kisbenedek

Breski ökumaðurinn George Russell kom fyrstur í mark í Formúlu 1 kappakstrinum í Belgíu í dag. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, Lewis Hamilton, var í öðru sæti.

Charles Leclerc, sem keyrir fyrir McLaren, byrjaði fremstur á ráspól en lenti í fjórða sæti en liðsfélagi hans Oscar Piastri lenti í þriðja sæti.

Hamilton og Russell kepptust um fyrsta sætið undir lokin og Hamilton reyndi allt til þess að komast fram úr honum en það tókst ekki. 

Hollenski ökumaðurinn Max Verstappen, ökumaður Red Bull, tók út refsingu og byrjaði ellefti en komst upp í fimmta sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert