Stórleikur í átta liða úrslitum

Argentínumenn mæta Frökkum í átta liða úrslitum.
Argentínumenn mæta Frökkum í átta liða úrslitum. AFP/Olivier Chassignole

Frakkland og Argentína mætast í stórleik átta liða úrslita knattspyrnu karla á Ólympíuleikunum í París. 

Frakkar unnu Nýja-Sjáland, 3:0, í kvöld og þar með A-riðilinn. Argentína vann Úkraínu, 2:0, en Marokkó vann Írak, 3:0, og vinnur þar með B-riðilinn. 

Marokkó mætir Bandaríkjunum í átta liða úrslitum. 

Spánverjar mæta þá Japan en Egyptaland mætir Paragvæ. 

Leikirnir fara fram föstudaginn annan ágúst. 

Jean-Phillipe Mateta er framherji Frakka.
Jean-Phillipe Mateta er framherji Frakka. AFP/Clément Mahoudeau
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert