Lést rétt áður en hún kom í mark

Jaine Oliveira er látin, 34 ára að aldri.
Jaine Oliveira er látin, 34 ára að aldri. Ljósmynd/Instagram

Brasilíska hjólakonan Jaine Oliveira lést 34 ára að aldri er hún lenti í árekstri í hjólakeppni í Baianópolis í heimalandinu í gær.

Oliviera, sem var tveggja barna móðir, lést þegar hún hafnaði á vörubíl með þeim afleiðingum að stór hátalari rakst í höfuð hennar.

Þrátt fyrir skjót viðbrögð viðstaddra tókst ekki að bjarga lífi þeirrar brasilísku. Önnur hjólreiðakona lenti einnig í árekstrinum en slapp með minniháttar meiðsli.

Ökumaður vörubílsins flúði vettvang eftir slysið og er málið til rannsóknar hjá lögreglunni á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert