Erna Sóley bætti mótsmetið

Erna Sóley Gunnarsdóttir.
Erna Sóley Gunnarsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ólympíufarinn Erna Sóley Gunnarsdóttir úr ÍR kastaði lengst eða 16,66 metra í bikarkeppni FRÍ á Kópavogsvelli í dag. 

Erna Sóley vann þar með inn sjö stig fyrir ÍR en Irma Gunnarsdóttir úr FH-A kastaði næst lengst eða 13.30 metra og vann inn sex stig. 

Erna Sóley bætti mótsmetið en Íslandsmet hennar er 17,91 metrar. 

Arnar Rut Arnarsdóttir úr Fjölni/UMSS kastaði þriðja lengst eða 11,50 metra og vann inn fimm stig, 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert