Hafnfirðingar tvöfaldir meistarar

Irma Gunnarsdóttir setti mótsmets í langstökki.
Irma Gunnarsdóttir setti mótsmets í langstökki. mbl.is/Hákon

FH varð á laugardaginn bikarmeistari í frjálsum íþróttum á Kópavogsvelli í Kópavogi, bæði í karla- og kvennaflokki. FH og ÍR háðu harða baráttu um bikarmeistaratitilinn en að endingu voru það Hafnafirðingar sem höfðu betur.

Kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir, ÍR, setti mótsmet þegar hún kastaði kúlunni 16,66 metra og Irma Gunnarsdóttir úr FH bætti mótsmetið í langstökki kvenna þegar hún stökk 6,29 metra .

Þá fagnaði ÍR-ingurinn Guðni Valur Guðnason sigri í kringlukasti þegar hann kastaði 54,74 metra. Hilmar Örn Jónsson úr FH bar sigur úr býtum í sleggjukasti með nokkrum yfirburðum þegar hann kastaði 70,16 metra en hann kastaði rúmlega 25 metrum lengra en Mímir Sigurðsson sem varð í öðru sæti.

Birta María Haraldsdóttir úr FH fagnaði sigri í hástökki  þegar hún stökk yfir 1,75 metra og Dagbjartur Daði Jónsson úr FH kastaði lengst í spjótkasti eða 74,43 metra.

Í karlaflokki fékk lið FH 82 stig, fjórum stigum meira en ÍR sem hafnaði í öðru sæti. Breiðablik hafnaði í þriðja sæti með 65 stig.

Í kvennaflokki fékk lið FH 84 stig en ÍR fékk 74 stig. Fjölnir/UMSS fékk 56 stig og hafnaði í þriðja sæti.

Hilmar Örn Jónsson fagnaði öruggum sigri í sleggjukasti.
Hilmar Örn Jónsson fagnaði öruggum sigri í sleggjukasti. mbl.is/Hákon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert