Arnar og Halldóra unnu í hálfmaraþoni

Halldóra Huld Ingvarsdóttir fyrir miðju.
Halldóra Huld Ingvarsdóttir fyrir miðju. mbl.is/Arnþór

Arnar Pétursson og Halldóra Huld Ingvarsdóttir komu fyrst í mark í hálfmaraþoni Reykjavíkurmaraþonsins í dag.

Arnar hljóp á einni klukkustund, átta mínútum og 19 sekúndum og var 18 sekúndum á undan næsta manni, Þjóðverjanum Nils Fischer, sem hljóp á tímanum 1:08:37.

Þorsteinn Roy Jóhannsson var þriðji á tímanum 1:09:36.

Munaði fimm sekúndum

Kvenna megin kom Halldóra Huld fyrst í mark á tímanum 1:22:05 og var fimm sekúndum á undan Vaidu Nakrosiuté frá Litháen sem hafnaði í öðru sæti á 1:22:10.

Anna Berglind Pálmadóttir var ekki ýkja langt undan í þriðja sætinu en hún kom í mark á tímanum 1:22:32.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert