Harður árekstur í Formúlu 1 (myndskeið)

Bifreið Sargeant stórskemmdist.
Bifreið Sargeant stórskemmdist. AFP/Remko de Waal

Bandaríkjamaðurinn Logan Sargeant lenti í hörðum árekstri á þriðju og síðustu æfingunni fyrir tímatökuna í Hollandskappakstrinum í Formúlu 1 í gær.

Sargeant klessti Williams-bifreið sína harkalega með þeim afleiðingum að það kviknaði í henni og hún stórskemmdist. Mikil bleyta var á brautinni sem gerði ökuþórum erfitt fyrir.

Sá bandaríski slapp vel og varð ekki fyrir alvarlegum meiðslum í árekstrinum. Náði hann að koma sér úr bílnum áður en eldurinn kviknaði.

Atvikið má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert