Hlynur og Sigþóra hlutskörpust í tíu kílómetrum

Hlynur Andrésson var fyrstur í tíu kílómetra hlaupi.
Hlynur Andrésson var fyrstur í tíu kílómetra hlaupi. mbl.is/Hákon Pálsson

Hlynur Andrésson og Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir báru sigur úr býtum í tíu kílómetra hlaupi í Reykjavíkurmaraþoninu í dag.

Í karlaflokki kom Hlynur fyrstur í mark á 30:23 mínútum.

Dean Yost frá Bandaríkjunum varð annar á 32:15 mínútum og Stefán Kári Smárason var skammt undan í þriðja sæti á 32:20 mínútum.

Í kvennaflokki var Sigþóra Brynja fyrst í mark á 36:23 mínútum.

Elín Edda Sigurðardóttir varð önnur á 36:57 mínútum og Eva García Morales frá Spáni hafnaði í þriðja sæti á 37:40 mínútum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert