Fyrrverandi eiginkona Schumachers tjáir sig

Ralf Schumacher er nú í sambandi með hinum franska Etienne.
Ralf Schumacher er nú í sambandi með hinum franska Etienne. Ljósmynd/Ralf Schumacher

Cora Schumacher, fyrrverandi eiginkona ökuþórsins Ralfs Schumacher, er ósátt við það netníð sem hún hefur þurft að þola undanfarna daga.

Ralf Schumacher kom á dögunum út úr skápnum og var Cora ósátt við að eiginmaðurinn fyrrverandi hafi aldrei sagt sér að hann væri samkynhneigður.

Í kjölfarið birti Ralf einkasamtöl á milli sín og Coru, en í þeim var eiginkonan fyrrverandi að saka þýska ökuþórinn um lygar.

„Hann birti einkasamtöl sem láta mig líta illa út. Hann brást trausti mínu og núna fæ ég endalaust af skilaboðum um að ég sé lygari og hafi aðeins verið að eltast við peninga. Ég er nú einstæð móðir og það er ekki auðvelt. Ég laug aldrei,“ skrifaði hún á Instagram.

Ralf Schumacher er bróðir sjöfalda heimsmeistarans Michaels Schumachers. Ralf keppti fyrir Jordan, Williams og Toyota í Formúlu 1 frá 1997 til 2007. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert