Hafnaði í 15. sæti á Nýja-Sjálandi

Skíðakonan Elín van Pelt.
Skíðakonan Elín van Pelt. Ljósmynd/Aðsend

Skíðakonan Elín Elmarsdóttir van Pelt hafnaði í 15. sæti í stórsvigi á skíðamóti á Nýja-Sjálandi á dögunum.

Elín kom í mark á tímanum 1:50,05 mínútum en Alice Robinson frá Nýja-Sjálandi kom fyrst í mark á tímanum 1:41,76 mínútum.

Elín keppti einnig á nýsjálenska meistaramótinu á dögunum þar sem hún hafnaði í 8. sæti í sömu grein.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert