Verða fánaberar Íslands í Frakklandi

Sonja Sigurðardóttir og Már Gunnarsson.
Sonja Sigurðardóttir og Már Gunnarsson. Ljósmynd/ÍF

Sundmaðurinn Már Gunnarsson og sundkonan Sonja Sigurðardóttir verða fánaberar Íslands á opnunarhátíð Paralympics í París í Frakklandi.

Þetta tilkynnti Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands á heimasíðu sinni en setningarathöfn leikanna fer fram í dag.

Sonja, sem keppir í 50 m og 100 m baksundi á leikunum er á sínum þriðju leikum og Már, sem keppir í 100 m baksundi er að keppa á Paralympics í annað sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert