Leikmaður skotinn í brjóstkassann

Ricky Pearsall.
Ricky Pearsall. AFP/Thearon W. Henderson

Ameríski fótboltamaðurinn Ricky Pearsall, leikmaður San Francisco 49ers í bandarísku NFL-deildinni, var skotinn í brjóstkassann í gær.

Ástand hans er stöðugt en staðan er alvarleg eftir að 17 ára strákur reyndi að ræna hann þegar hann var gangandi einn í San Francisco.

Pearsall er 23 ára gamall útherji og gat gengið inn í sjúkrabílinn.

 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka