Norris byrjar á ráspól

Lando Norris byrjar á ráspól.
Lando Norris byrjar á ráspól. AFP/Andrej Isakovic

Breski ökumaðurinn Lando Norris, sem keyrir fyrir McLaren í Formúlu 1 kappakstrinum byrjar á ráspól á Ítalíu í dag.

Liðsfélagi Norris, Oscar Piastri, er næstur og George Russel sem keyrir fyrir Mercedes er þriðji. Svo koma Ferrari ökumennirnir Charles Leclerc og Carlos Sainz og sjötti er Lewis Hamilton.

Hollenski ökumaðurinn Max Verstappen var ekki upp á sitt besta og byrjar sjöundi þegar keppnin hefst klukkan 13 í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka