Rúta ÍBV lenti í árekstri

ÍBV hafnaði í sjötta sæti 1. deildar kvenna.
ÍBV hafnaði í sjötta sæti 1. deildar kvenna. mbl.is/Arnþór Birkisson

Rúta sem var að ferja leikmenn meistaraflokks kvenna í handbolta og fótbolta lenti í árekstri í dag. ÍBV tilkynnir þetta í færslu á Facebook í dag.  

Engin slasaðist en þó eru einhverjar aumar eftir áreksturinn.  

Bæði lið áttu leik í dag og hafði ÍBV betur gegn Gróttu, 23:21, í handboltanum á Seltjarnanesinu.  

Í fótbolta þurfti ÍBV að þola 5:0 tap gegn HK í Kórnum í lokaumferð 1. deildar kvenna.  

Hér fyrir neðan má sjá færslu ÍBV á Facebook 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert