Aðeins tveir keppendur eru eftir í bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa í Heiðmörk. Eru það þær Þórdís Ólöf Jónsdóttir og Marlena Radziszewska.
Hringur 36 lauk fyrir skömmu en að honum loknum voru þær Þórdís og Marlena búnar að klára 241 km hlaup, að sögn Elísabetar Margeirsdóttur hjá Náttúruhlaupum.
Í 35. hring datt Sölvi Snær Egilsson út, en hann er fæddur árið 2003. Ný kynslóð er að ná góðum árangri í keppninni í ár en Þórdís Ólöf er fædd árið 2001. Áður hafði hún lengst hlaupið 15 hringi og er því um að ræða umtalsverða bætingu hjá henni.
Marlena hefur lengst farið 38 hringi í bakgarðskeppni.
Ef þeim Þórdísi og Marlenu tekst að ljúka við 38 hringi gæti þetta orðið alla vega þriðja lengsta bakgarðskeppnin á Íslandi hingað til, að sögn Elísabetar.
Bakgarðshlaupið virkar þannig að á hverjum klukkutíma hlaupa keppendur 6,7 kílómetra hring. Hver hringur er ræstur út á heila tímanum og ef keppandi er kominn í mark áður en að næsti hringur byrjar má hann nota restina af tímanum til þess að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring.
230 keppendur hófu keppni á laugardagsmorgun en eins og áður segir standa aðeins tvær eftir.
Uppfært klukkan 22:10
Þórdís og Marlena lögðu af stað í hring númer 38 klukkan 22.