Vinsæli ástralski ökumaðurinn, Daniel Ricciardo, hefur misst sætið sitt hjá RB í Formúlu 1. Liam Lawson, 22 ára ökumaður frá Nýja Sjálandi tekur við af honum.
Liðið og hann forðuðust spurningar um hvort að keppnin í Singapúr, síðustu helgi, væri hans síðasta þegar á keppninni stóð og liðið staðfesti þetta ekki fyrr en eftir á. Það eru sex keppnir eftir af tímabilinu og Lawson mun keppa fyrir hönd liðsins í þeim.
Riccardio er 35 ára gamall og er líklegast hættur í Formúlu 1. Hann lenti 32 sinnum uppi á verðlaunapalli og vann átta keppnir.