Allir með-leikarnir fara fram í fyrsta sinn laugardaginn 9. nóvember næstkomandi í Laugardalshöllinni og fimleikasal Ármanns. Leikarnir eru hluti af verkefninu Allir með, sem miðar að því að fjölga tækifærum fyrir börn með fatlanir í íþróttum.
Í tilkynningu frá Allir með segir að markmiðið með leikunum sé fyrst og fremst að kynna íþróttir fyrir þessum hópi og gera verkefnið um leið sýnilegra í samfélaginu, en aðeins fjögur prósent íslenskra barna með fatlanir stunda íþróttir.
Öll börn með fatlanir eru boðin hjartanlega velkomin á leikana og fjölskyldan er sömuleiðis velkomin með.
„Íþróttaálfurinn mætir á svæðið. Allir þátttakendur fá brúsa merktan leikunum og boðið verður upp á pitsuveislu í hádeginu þar sem einnig verða kynningar á öðrum íþróttagreinum. Deginum líkur svo með dúndrandi diskói,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Þátttökugjald á Allir með-leikana er 1.500 krónur og fer skráning fram á heimasíðu verkefnisins.