Spennandi úrslitaleikur í öðru stigamótinu

Orven Christan Destacamento bar sigur úr býtum í úrslitaleik.
Orven Christan Destacamento bar sigur úr býtum í úrslitaleik. Ljósmynd/Billiardsamband Íslands

Æsispennandi úrslitaleikur fór fram í dag þegar öðru stigamótinu í pool lauk. Mótið fór fram á Snóker-og Poolstofunni í Lágmúla.  

Hlynur Stefánsson, sigurvegari fyrsta stigmótsins, og Orven Christan Destacamento mættust í úrslitaleik. Orven hafði betur að lokum með minnsta mögulega mun, 8:7.  

Næsta mót Billiardsambands Íslands verður í snóker helgina 26. og 27. október. 

Orven Christan Destacamento.
Orven Christan Destacamento. Ljósmynd/Billiardsamband Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert